Erlent

Svíinn bíður enn geimskots á Canaveral

Discovery bíður á skotpallinum

Enn er óvíst hvort geimferjan Discovery komist á loft frá Kennedy geimferðamiðstöðinni á Florida og á braut umhverfis Jörðu í kvöld eins og áætlað er. Líkurnar á að veðrið leyfi geimskot að þessu sinni eru ekki nema 30%. Byrjað er að fylla á eldsneytistanka ferjunnar. Það kostar NASA um hálfa milljón dollara í hvert skipti sem geimskoti er frestað. Veðurhorfurnar um helgina fara batnandi og mestar líkur eru á að það gefi til geimskots á þriðjudag. Tilgangur ferðarinnar er meðal annars að ferja nýja tveggja tonna viðbót að Alþjóðlegu geimstöðinni og skipta út einum af þremur íbúum stöðvarinnar. Nýi íbúinn í geimstöðinni, Svíinn Christer Fuglesang, er fyrsti Skandinavinn sem farið hefur út í geiminn, en þó ekki fyrsti Norðurlandabúinn í geimnum ef við teljum með íslenska geimfarann Bjarna Tryggvason.

NASA vill helst að geimferjan nái að snúa til Jarðar úr þessum 14 daga leiðangri fyrir áramótin vegna þess að tölvurnar um borð geta ekki skipt milli síðasta dags þessa árs yfir í fyrsta dag ársins 2007. Sérfræðingar NASA hafa útbúið leiðréttingu á þessum galla, en eru ekki alveg klárir á að hún virki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×