Erlent

Fundað um friðarferli í Palestínu

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna vill leggja lóð Bandaríkjanna á vogarskálarnar til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna vill leggja lóð Bandaríkjanna á vogarskálarnar til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. MYND/AP

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til fundar við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu í morgun í gamalkunnu borginni Jeríkó á Vesturbakka Jórdanar. Bandaríkjamenn leggja með þessu sitt af mörkum til að koma af stað friðarferli milli Palestínumanna og Ísraela. Rice fundar með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels í Jerúsalem síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×