Erlent

Herinn á Fiji setur ríkisstjórninni afarkosti

Frank Bainimarama, hershöfðingi á Fiji hefur nú í hótunum við ríkisstjórnina.
Frank Bainimarama, hershöfðingi á Fiji hefur nú í hótunum við ríkisstjórnina. MYND/AP
Yfirhershöfðingi eyríkisins Fiji í Kyrrahafi hefur gefið forsætisráðherra landsins sólarhrings frest til að taka sig saman í andlitinu og hreinsa til í ríkisstjórninni, ellegar muni herinn taka völdin af stjórninni. Öryggisráðið lýsti í gær yfir áhyggjum af ástandinu og bjóst við að herinn myndi reyna valdarán.

Frank Bainimarama, herforingi, hefur ítrekað hótað að steypa ríkisstjórn landsins, ef hún falli ekki frá lagasetningum sem hann sættir sig ekki við. Það hefur löngum verið róstusamt á þessum Kyrrahafseyjum og þar hafa verið framin fjögur valdarán síðustu tuttugu árin.

Hershöfðinginn hefur krafist þess að stjórn landsins setji ýmis vafasöm lög og þar á meðal yrðu lög sem myndu gefa þeim sem tóku þátt í valdaráni árið 2000 upp sakir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×