Erlent

Norður-Kórea mun standa við alþjóðasamkomulag

Kim Kye Gwan, varautanríkisráðherra Norður-Kóreu var eitt sólskinsbros þegar hann kom af fundi með starfsbróður sínum frá Suður-Kóreu í morgun.
Kim Kye Gwan, varautanríkisráðherra Norður-Kóreu var eitt sólskinsbros þegar hann kom af fundi með starfsbróður sínum frá Suður-Kóreu í morgun. MYND/AP

Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðu í morgun að Norður-Kóreumenn væru reiðubúnir að fylgja alþjóðasamkomulagi um kjarnavopn sem samþykkt var á síðasta ári en að þeir myndu aldrei gefa kjarnavopn sín upp á bátinn. Samkomulagið sem kennt er við 19. september felur í sér að Norður-Kóreumenn hætti við kjarnavopnaáætlun sína og fái í staðinn aðstoð í efnahags- og öryggismálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×