Erlent

16 ára drengur á hjóli skotinn í höfuðið í Malmö

Í gærkvöldi var lögreglunni í Malmö í Svíþjóð tilkynnt um að 16 ára drengur hafi lent í reiðhjólaóhappi. Þegar sjúkraliðar komu á staðinn uppgötvuðu þeir að drengurinn hafði bæði verið laminn og skotinn í höfuðið.

Drengurinn var hjólandi á leið sinni á fótboltaæfingu þegar hann varð fyrir fólskulegri líkams-og skotárás. Líðan hans er alvarleg og var hann fluttur í skurðaðgerð á sjúkrahúsið í Lundi.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×