Erlent

Þúsundir manna flýja heimili sín í Afríku vegna flóða

Maður bjargar dreng af þaki strákofa í Austur-Afríku.
Maður bjargar dreng af þaki strákofa í Austur-Afríku. MYND/AP

Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna þurfti í gær að aðstoða þúsundir manna við að flýja frá Dadaab flóttamannabúðunum í Norðaustur-Kenía, þar sem flóð ógnuðu búðunum, eins og fleiri stöðum í Austur-Afríku. Kapphlaupið við tímann og vatnið heldur áfram því í veðurkortunum birtist áframhaldandi vætutíð.

Fyrir utan augljósa lífshættu að fólk hrífist með flóðinu og drukkni, eykur vatnsflaumurinn tíðni niðurgangs og annarra vatnsborinna sjúkdóma og líkurnar á kóleru-faraldri aukast gífurlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×