Erlent

Google til bjargar læknum

Rangar greiningar draga oft dilk á eftir sér.
Rangar greiningar draga oft dilk á eftir sér. MYND/AP

Vísindamenn við háskólann í Brisbane í Ástralíu ráðleggja læknum að "gúgla" sjúkdómseinkenni erfiðra greininga, þ.e. leita að þeim með hjálp Google leitarvélarinnar á internetinu. Leitarvélin hafði rétt svar í 58% tilfella, þannig að þó að ekki sé alltaf hægt að treysta á hana, þá má hafa hana til hliðsjónar.

Niðurstöður læknanna eru birtar í tímaritinu British Medical Journal og er þar bent á að læknar og sjúklingar noti netið æ meira til að leita sér upplýsinga um sjúkdóma og einkenni. Vísindamennirnir segja að "netið geti verið gagnlegt til upplýsingaöflunar þegar greiningin er erfið.

Aðrir sérfræðingar hafa gagnrýnt ráðleggingar Ástralanna því netsíður séu oft óáreiðanlegar heimildir og því ekki ráð að treysta um of á þær þegar líf liggur við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×