Erlent

Bandaríkjamenn munu ekki breyta umhverfisstefnu í bráð

Útblástur frá bílum og öðrum farartækjum eru með helstu mengunarvöldum sem valda gróðurhúsaáhrifum.
Útblástur frá bílum og öðrum farartækjum eru með helstu mengunarvöldum sem valda gróðurhúsaáhrifum. MYND/Einar Ólason

Þeim sem vonuðu að Bandaríkjamenn sæju að sér í umhverfismálum og minnkuðu útblástur gróðurhúsalofttegunda verður ekki að ósk sinni í bráð. Fulltrúi Bandaríkjanna á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi í Kenía tilkynnti í gær að svo yrði ekki í forsetatíð Bush Bandaríkjaforseta.

Harlan Watson, samningamaður bandarísku sendinefndarinnar sagði í gær að hann hafi ekki fengið nein fyrirmæli frá stjórnvöldum í Washington um að það sé "nokkur breyting í stefnu Bandaríkjamanna, né er slíkt líklegt á þessu kjörtímabili núverandi forseta."

Demókratar eru hliðhollir Kyoto-bókuninni og strangara aðhaldi í umhverfismálum en nái slíkt frumvarp í gegnum þingið ef og þegar demókratar ná völdum í þinginu, þá má gera ráð fyrir því að Bush forseti beiti neitunarvaldi gegn því. Hann hefur sagt að skilyrðin sem Kyoto-bókunin setur myndu múlbinda bandarískt efnahagslíf.

Fulltrúar rúmlega 100 ríkja sitja ráðstefnuna um breytt loftslag og fer Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra út til Kenía í næstu viku.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×