Erlent

Saddam enn í réttarsal, nú vegna þjóðarmorðs á Kúrdum

Saddam Hússein fær að sitja langa daga í réttarsal áður en allt er um garð gengið.
Saddam Hússein fær að sitja langa daga í réttarsal áður en allt er um garð gengið. MYND/AP

Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, er kominn aftur inn í réttarsal í Bagdad, tveimur dögum eftir að hann var dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyni. Nú svarar hann til saka fyrir annað mál: hann er ákærður fyrir hlut sinn í þjóðarmorði á Kúrdum í Norður-Írak á síðari hluta 9. áratugar 20. aldarinnar.

Talið er að yfir 180 þúsund manns hafi látið lífið í Anfal-herferðinni gegn Kúrdum. Útgöngubanni vegna dómsuppkvaðningarinnar á sunnudaginn hefur verið aflétt í Bagdad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×