Erlent

Ortega hefur öruggt forskot

Daníel Ortega
Daníel Ortega MYND/AP

Allt bendir til þess að Daníel Ortega, fyrrum byltingarleiðtogi í Níkaragva, vinni öruggan sigur í forsetakosningum í landinu. Þegar rúm 60% atkvæða hafa verið talin hafa 39% atkvæða fallið honum í skaut og hefur hann 8 prósentustiga forskot á aðalkeppinaut sinn.

Þannig þykir mjög líklegt að ekki þurfi aðra umferð kosninga. Bandaríkjamenn eru uggandi yfir þessu enda varð stuðningur Bandaríkjamanna við Kontra-skæruliða og þar með blóðuga borgarastyrjöld á níunda áratugnum til þess að Ortega hrökklaðist frá völdum árið 1990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×