Erlent

Abbas og Haniyeh funda áfram í dag

Ismail Hanieyh, leiðtogi Hamas t.v., og Mahmoud Abbas, leiðtogi Fatah t.h.
Ismail Hanieyh, leiðtogi Hamas t.v., og Mahmoud Abbas, leiðtogi Fatah t.h. MYND/AP

Mahmoud Abbas og Ismail Haniyeh, leiðtogar Hamas og Fatah fylkinganna í Palestínu, funda á ný í dag, eftir að þeim mistókst að leggja lokahönd á samkomulag um að hópur sérfræðinga myndi sameiginlega stjórn fylkinganna tveggja sem tekur við af ríkisstjórn Hamas-flokksins.

Þeir halda áfram viðræðunum í dag, í von um að óháð ríkisstjórn bindi enda á alþjóðlegar viðskiptahindranir til Palestínu. Ýmis vestræn ríki, sem og Evrópusambandið, lögðu viðskiptaþvinganir á Palestínu eftir sigur Hamas í þingkosningunum í vor, vegna þess að Hamas neitar að hætta ofbeldi gegn Ísraelum og neitar að viðurkenna Ísraelsríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×