Erlent

Ísraelsher dregur sig frá Beit Hanoun

Ísraelskir skriðdrekar fyrir utan bæinn Beit Hanoun í Palestínu.
Ísraelskir skriðdrekar fyrir utan bæinn Beit Hanoun í Palestínu. MYND/AP

Ísraelski herinn dró sig frá palestínska bænum Beit Hanoun í dögun í morgun eftir sex daga árásir sem heryfirvöld sögðu beint gegn skæruliðum en sem urðu tugum óbreyttra borgara að bana. Ísraelski herinn segist hafa náð markmiðum sínum með árásunum.

Um 50 Palestínumenn létust á þessum 6 dögum meðan allur bærinn Beit Hanoun var undir ísraelskri stjórn. Tugþúsundum íbúa bæjarins var skipað að halda sig innan dyra og leiddi það meðal annars til rafmagnsskorts og vatnsskorts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×