Erlent

Bæta réttindi ólöglegra innflytjenda

Forsetar fimm Suður-Ameríkuríkja ræðast við: forsetar Chíle, Kólumbíu, Bólivíu, Panama og El Salvadors.
Forsetar fimm Suður-Ameríkuríkja ræðast við: forsetar Chíle, Kólumbíu, Bólivíu, Panama og El Salvadors. MYND/AP

22 evrópskir og suðuramerískir þjóðarleiðtogar ákváðu í gær að samhæfa aðgerðir til að stemma stigu við flæði ólöglegra innflytjenda frá Suður-Ameríku. Einnig vilja leiðtogarnir gæta betur réttinda ólöglegra verkamanna sem hvergi eru skráðir í nýja landinu.

Stórfundi Suður-Ameríkuríkja og nokkurra Evrópuríkja lauk í gær í höfuðborg Úrúgvæs. Áætlað er að 25 milljónir Suður-Ameríkumanna búi og starfi utan heimsálfunnar og hefur þeim fjölgað um fjórar milljónir, eða 19 prósent, á fjórum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×