Erlent

Ortega leiðir eftir fyrstu tölur í Níkaragúa

Daniel Ortega
Daniel Ortega MYND/AP

Níkaragúabúar telja nú upp úr kjörkössum forsetakosninganna sem fóru fram í gær. Fyrstu tölur gefa til kynna að byltingarmaðurinn Daniel Ortega gæti snúið aftur til valda, 16 árum eftir að Bandaríkjamenn styrktu aðra byltingarmenn sem veltu honum úr sessi.

Ortega hefur fengið 40% atkvæða þegar búið er að telja 7% atkvæða en helsti keppinautur hans, Eduardo Montealegre, fylgir í humátt á eftir með 32%. Haldist þessi hlutföll mun ekki þurfa aðra umferð til að útkljá baráttuna.

Kosningarnar virðast hafa farið lýðræðislega fram og var kjörsókn mjög góð. Ortega hefur tekið þátt í forsetakosningunum frá því að hann var rekinn frá völdum en ekki verið nærri því fyrr en nú að komast aftur til valda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×