Erlent

Olmert segist ekki ætla að hertaka Gaza á ný

Hátt í 50 Palestínumenn hafa týnt lífi síðustu sex dagana í nýjustu árásahrinu Ísraelsmanna á Palestínu. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, neitaði að gefa nokkra yfirlýsingu um það hvenær árásirnar tækju enda en vildi fullvissa fjölmiðla um að Ísraelar hygðust ekki hertaka Gaza-ströndina á ný.

17 ára unglingspiltur lét lífið í loftárás Ísraelsmanna á bæinn Beit Lahiya á norðurhluta Gaza-svæðisins. Fjórir slösuðust til viðbótar þegar sprengjan féll nærri skólabíl, að sögn vitna.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×