Erlent

Palestínumaður lætur lífið í árás Ísraela í nótt

Minnst einn herskár Palestínumaður féll og tveir særðust þegar Ísraelsher gerði loftárás lítinn sendibíl í Gaza-borg í nótt. Liðsmenn Hamas-samtakanna voru á ferð í bílnum. Þetta er í annað sinn á tæpum sólahring sem Ísraelar gera loftárás á bifreið liðsmanna samtakanna.

Ísrelsher hefur hert aðgerðir sína á Gaza-svæðinu síðan á miðvikudag þegar þeir hófu sókn á svæðið til að koma í veg fyrir flugskeytaárásir á landsvæði í Suður-Ísrael. Minnst þrjátíu og sex Palestínumenn hafa fallið síðustu fjóra daga, þar af sautján í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×