Erlent

Staðdeyfandi smokkar auka úthaldið

Syngjandi hamingja í svefnherberginu með staðdeyfismokknum.
Syngjandi hamingja í svefnherberginu með staðdeyfismokknum.

Nýjasta æðið hjá dönskum karlmönnum eru staðdeyfandi smokkar, þetta kaupa Danirnir í von um að limurinn endist lengur í átökum næturinnar. Danska dagblaðið Urban lýsir því í dag að smokkurinn sé makaður í deyfiefni að innan til þess að minnka tilfinninguna og þar með æsinginn. Verjurnar gagnlegu kaupa Danirnir á netinu.

Urban vitnar í Jannick Unterschlag, eiganda Condom-Company, sem segir smokkana sérstaklega gagnast þeim sem illa gagnast kvenfólki vegna bráðræðis. Með dofnum lim endist þeir lengur án þess að skreppa alltaf út þegar leikar æsast.

Jannick segir deyfiefnið endast í allt að 20 mínútur. "Það getur verið einhver fiðringur eftir á - en það hefur litla sem enga þýðingu, því maður sem hefur stundað kynlíf í 19 og hálfa mínútu sofnar hvort sem er yfirleitt fljótt og vel eftir það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×