Erlent

Þorskur aftur genginn að Grænlandsströndum

Mynd/AP

Þorskur er aftur genginn að Grænlandsströndum að sögn norska blaðsins Fiskeribladet, og fékk togari umþaðbil þúsund tonn af vænum þorski á slóðum, þar sem ekki hefur sést þorskur í fimmtán ár.

Þá vekur athygli hversu hátt hlutfall er stór-þorskur og eru bundnar miklar vonir við þetta á Grænlandi. Þar voru menn nánast orðnir úrkula vonar um að sjá þorsk aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×