Erlent

Leiðtogar Mið- og Austur-Asíu funda í Shanghai

Frá vinstri:  Vladimir Putin, forseti Rússlands, Nursultan Nazarbayev, forseti Kasakstans og Hu Jintao, forseti Kína.
Frá vinstri: Vladimir Putin, forseti Rússlands, Nursultan Nazarbayev, forseti Kasakstans og Hu Jintao, forseti Kína. MYND/AP

Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í dag á aðalfundi hennar. Stofnunin var sett á laggirnar fyrir 5 árum, þá í þeim tilgangi að gera út um landamæradeilur á svæðinu.

Nokkur stærstu lönd í mið- og Austur-Asíu eiga aðild að stofnuninni: Kína, Rússland, Tajikistan, Kasakstan, Kyrgistan og Úsbekistan. Þetta árið fá Pakistan, Afganistan, Indlandi og Íran að áheyrnarrétt á fundum stofnunarinnar. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran, en löndin tvö hafa verið þolinmóðari en flest Vesturveldanna og gegna lykilstöðu vegna neitunarvalds síns í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×