CIA hylmdi yfir með stríðsglæpamanninum Eichmann 7. júní 2006 12:05 Eichmann við réttarhöldin yfir honum í Tel Aviv þegar ísraelska leyniþjónustan hafði handsamað hann.
Hulunni var í gær lyft af skjölum bandarísku leyniþjónustunnar frá því á árunum eftir stríð. Þar kemur meðal annars fram að CIA, hylmdi á sjötta áratugnum yfir með Adolf Eichmann, einum helsta skipuleggjanda helfararinnar, af ótta við að hann upplýsti um óþægilegar staðreyndir um háttsetta menn. Adolf Eichmann fór huldu höfði eftir stríð til að sleppa við þá refsingu sem beið hans en ísraelska leyniþjónustan hafði þó loks upp á honum og var hann tekinn af lífi eftir réttarhöld í Tel Aviv. Nú hefur komið í ljós að bæði CIA og vesturþýska leyniþjónustan vissu hvar hann dvaldist í Argentínu og undir hvaða leyninafni hann gekk en gerðu ekkert í því, af ótta við að hann drægi fram í dagsljósið óþægilegar hliðar á Hans Globke, fyrrum nasista, sem þá var einn helsti ráðgjafi Adenauers, fyrsta kanslara Þýskalands. Einnig kemur fram að CIA hafi þrýst mjög á blaðamenn sem náðu tali af Eichmann, um að hafa ekki eftir honum neinar upplýsingar um Glopke, sem á sínum tíma var einn af aðstoðarmönnum Eichmanns. Efnið sem nú hefur verið gert opinbert telur um 27 þúsund blaðsíður. Það er meðal skjala sem CIA hefur orðið að opinbera vegna laga sem sett voru í Bandaríkjunum árið 1999, og CIA mótmælti ákaft, um að öll leyniþjónustuskjöl sem sneru að stríðsglæpum nasista og japönsku ríkisstjórnarinnar skyldu gerð opinber.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Sjá meira