Yfir 2.700 taldir látnir 27. maí 2006 13:00 Ekki stendur steinn yfir steini í Yogyakarta. MYND/AP
Nú er talið að í það minnsta 2.700 manns hafi týnt lífi þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eyna Jövu í nótt. Miklar skemmdir hafa orðið á húsum á skjálftasvæðinu en engrar flóðbylgju hefur þó orðið vart.Jarðskjálftinn sem var af stærðinni 6,2 reið yfir þegar klukkan var sex mínútur í sex að staðartíma, eða laust fyrir ellefu í gærkvöld að íslenskum tíma. Upptök hans voru 25 kílómetra suður af hinni fornu borg Yogyakarta, sem er á vestanverðri Jövu, um 440 km suðaustur af Jakarta, höfuðborg Indónesíu. Að því er Sky-fréttastofan hermir hafa í það minnsta 2.727 týnt lífi. Að líkindum hafa þó fleiri látist því þúsundir manna eru alvarlega slasaðar og þá eru þeir ótaldir sem fastir eru undir rústum húsa sinna.Erfitt er um aðdrætti á þessum slóðum og læknar sagðir allt of fáir til að ráða við ástandið. Að sögn sjónarvotta stendur ekki steinn yfir steini í stórum hluta borgarinnar og eins hafa smærri bæir í nágrannahéruðum hennar orðið mjög illa úti. Rafmagnslaust er á svæðinu og öll fjarskipti liggja niðri.Eldfjallið Merapi er skammt frá Yogyakarta en ekki er talið að eldsumbrotin í því hafi valdið skjálftanum. Hann er aftur á móti talinn hafa aukið virkni í fjallinu. Þótt skjálftamiðjan sé skammt frá sjó hefur engrar flóðbylgju orðið vart í Indlandshafi í kjölfarið.Indónesía er stundum kölluð "Eldhringurinn" þar sem eldgos og jarðskjálftar eru afar algengt á þessum slóðum. Skemmst er að minnast jarðskjálftans mikla á öðrum degi jóla 2004 og flóðbylgjunnar sem fylgdi á eftir en þá fórust meira en 200.000 manns.
Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira