Erlent

Vantrausttillaga á de Villepin felld

Vantrauststillaga á hendur Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands var felld í neðri deild franska þingsins í dag. Tillagan var lögð fram af sósíalistum vegna ásakana á hendur Villepin um óheiðarleg vinnubrögð í kosningabaráttu. Ekki var mikil hætta á að vantrauststillagan yrði samþykkt, enda hefur ríkisstjórn Villepins rúma meirihluta í neðri deildinni: 364 af 577 þingsætum. Villepin hefur hins vegar þurft að svara fyrir sig vegna ásakana um að hann hafi fyrirskipað leynilega rannsókn á innanríkisráðherranum Sarkozy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×