Erlent

Ætla að veita Palestínumönnum stuðning

Kosningasigur Hamas leiddi til þess að dregið var úr stuðningi við Palestínumenn.
Kosningasigur Hamas leiddi til þess að dregið var úr stuðningi við Palestínumenn. MYND/AP

Fjórveldin sem standa að baki vegvísinum til friðar í Miðausturlöndum ætla að koma upp alþjóðlegu kerfi svo hægt sé að veita Palestínumönnum fjárhagslegan stuðning.

Bandaríkjamenn þvertóku í fyrstu fyrir að veita Palestínumönnum stuðning vegna andstöðu sinnar við stjórn Hamas. Evrópusambandið, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar náðu hins vegar málamiðlun við þá um tilraunaverkefni til að koma til móts við Palestínumenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×