Erlent

Ekkert á bréfinu að græða

Talsmaður Bandaríkjaforseta segir ekkert tekið á áhyggjuefnum alþjóðasamfélagsins í bréfi Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, til George Bush Bandaríkjaforseta. Bandarísk stjórnvöld fengu bréfið í hendur í dag.

Íranskir embættismenn höfðu sagt bréfið innihalda nýjar leiðir til að leysa úr ágreiningi um kjarnorkuáætlun Írana. John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði hins vegar að ekkert væri á bréfinu að græða. Hann sagði að svo virtist sem Íranar væru einungis að reyna að tefja málið. Bréf Íransforseta er upp á átján blaðsíður og er fyrstu beinu samskipti þjóðhöfðingja Bandaríkjanna og Írans frá því fyrir írönsku byltinguna 1979.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×