Erlent

Sjö létust í bruna í Taílandi

MYND/AP

Að minnsta kosti sjö manns létu lífið og yfir fimmtíu eru slasaðir eftir að eldur braust út á næturklúbbi í ferðamannabænum Pattaya í Taílandi í gærkvöld. Eldurinn braust út um hálftíuleytið, nokkru áður en staðurinn var opnaður gestum og voru því flestir þeirra sem létust eða særðust starfsfólk skemmtistaðarins. Eldsupptök eru enn ókunn en slökkvistarf gekk vel eða um klukkutíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×