Ósáttir við að palestínskur ráðherra sæki ráðstefnu í Svíþjóð 7. maí 2006 14:45 Atef Adwan, ráðherra flóttamannamála í Palestínu, mætir á ráðstefnuna í Malmö í gær. MYND/AP
Ísraelsmenn og Frakkar hafa brugðist ókvæða við þeirri ákvörðun sænskra stjórnvalda að veita ráðherra í heimastjórn Palestínumanna vegabréfsáritun svo hann geti sótt ráðstefnu í Malmö um málefni Palestínumanna. Ráðherrann þakkar Svíum og segir ákvörðun þeirra pólitísk skilaboð. Búist er við að rúmlega eitt þúsund Palestínumenn, sem búsettir eru víðsvegar um Evrópu, sæki ráðstefnuna. Þar verður fjallað um ýmis mál sem brenna á Palestínumönnum svo sem eins og möguleika flóttamanna á að snúa aftur á Vesturbakkann. Hamas-liðar unnu sigur í palestínsku þingkosningunum fyrr á árinu og hafa samtökin myndað ríkisstjórn. Sænsk stjórnvöld ákváðu á dögunum að veita Atef Adwan, ráðherra flóttamannamála, vegabréfsáritun svo hann geti sótt ráðstefnuna. Adwan mun þó ekki eiga fund með nokkrum ráðherra í sænsku ríkisstjórninni og ekki verður tekið á móti honum með opinberum hætti. Bent hefur verið á að þegar Adwan sé kominn til Svíþjóðar geti hann ferðast óáreittur milli Schengen landanna fimmtán og það séu mörg þeirra ekki sátt við, enda hefur Evrópusambandið, líkt og bandarísk stjórnvöld, ekki breytt frá þeirri skoðun sinni að Hamas séu hryðjuverkasamtök. Frakkar hafa sérstaklega látið í ljós óánægju sína og segja að Svíar hafi ekki gert grein fyrir því með fullnægjandi hætti hver væri að fá áritunina. Frakkar hafa hafnað umsókn Hamas-liða í heimastjórninni um áritun. Ákvörðun Svía hefur einnig vakið hörð viðbrögð meðal Ísraelsmanna sem segja að hún ljái Hamas lögmæti. Því vísar Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á bug. Öll ríki innan Schengen hafi fengið að vita af því að áritunin var veitt og ekki gert athugasemd. Þetta ætti því ekki að koma Schengen-ríkjum eða öðrum á óvart.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Sjá meira