Blóðug átök í Basra 6. maí 2006 19:00
Til blóðugra átaka kom í borginni Basra í Írak í dag eftir að bresk herþyrla var skotin þar niður í morgun. Fregnir herma að minnst fjórir hermenn sem voru um borð hafi farist en það hefur ekki verið staðfest. Það var í morgun sem breska herþyrlan hrapaði á íbúðarhverfi í Basra. Breski herinn hefur ekki viljað staðfesta að hún hafi verið skotin niður en erlendir miðlar hafa haft eftir lögreglu á staðnum að svo hafi verið. Þær heimildir segja að fjölmargir breskir hermenn hafi farist. Engan mun hafa sakað á jörðu niðri. Breskir hermenn voru þegar sendir á staðinn í brynvörðum bílum til að bjarga því sem hægt var að bjarga og verja flakið. Þar höfðu fjölmargir íbúar safnast saman og þegar hemenn komu á svæðið létu þeir grjóthnullungum og molotov kokteilum rigna yfir Bretana og brynvörðu bifreiðarnar þeirra. Basrabúum tókst að kveikja í einum bílnum með því að varpa á hann handsprengju. Bresku hermennirnir sem voru í bifreiðinni sluppu ómeiddir. Að lokum svöruðu hermennirnir með því að skjóta af byssum sínum í loftið og reyndu með því að dreifa mannfjöldanum. Þá kom til skotbardaga milli þeirra og vopnaðra andspyrnumanna. Fimm lágu í valnum eftir þau átök þar á meðal tvö börn. Minna hefur verið um átök í Basra samanborið við höfuðborgina Bagdad, en breski herinn hefur haft stjórn í Basra. Þar hefur þó orðið vart nokkurar spennu þar milli breskra hermanna og andspyrnumanna síðustu vikur.
Erlent Fréttir Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Sjá meira