Erlent

2000 ára gamlar rústir í París

MYND/AP

Leifar af 2000 ára gamalli rómverskri götu og húsum hafa fundist neðanjarðar í París. Skammt frá fundust heillegar rústir af rómverskum böðum frá sama tíma. Leifarnar fundust við framkvæmdir við Pierre og Marie Curie háskólann við bakka Signu, skammt frá Sorbonne.

Minjarnar þykja sanna að einhver borgarmyndun var í París á tímum Rómaveldis, en borgin var á þeim tíma þekkt undir nafninu Lutèce. Uppgröfturinn sem hófst í byrjun mars, verður að klárast fyrir júnílok því að þá hefjast byggingaframkvæmdirnar á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×