Erlent

Gekk í bol með skopteikningu úr Jótlandspóstinum

Ítalskir ráðamenn reyna nú hvað þeir geta að lægja öldurnar meðal múslima, eftir að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar móðgaði múslima með því að ganga í bol með einni af skopteikningu Jótlandspóstsins framan á. Í kjölfarið brutust út óeirðir við ítalska sendiráðið í Lýbíu með þeim afleiðingum að 11 manns létust. Ráðherrann hefur þegar sagt af sér, og ítalski utanríkisráðherran, Gianfranco Fini, heimsótti stærstu moskuna í Rómarborg í gærkvöldi, og hitti fulltrúa frá Arabalöndum til að freista þess að minnka ólguna. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso, fordæmdi ofbeldið og lýsti yfir stuðningi við ítölsku ríkisstjórnina í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×