Erlent

Hungursneyð yfirvofandi í Kenýa

Hungursneyð er yfirvofandi í norðvesturhluta Kenýa vegna mikilla þurrka fimmta árið í röð.

Stór hluti svæðisins er nánast skrælnaður, nautgripir hafa drepist og uppskera visnað. Þegar í janúar liðu um þrjár og hálf milljón manna skort í kjölfar þurrkanna. Alþjóðahjálparstofnanir segja landið þurfa á mikilli fjárhagsaðstoð að halda, allt að tvöhundruð og fimmtíu milljónum króna.

Langar biðraðir mynduðust þar sem mat var dreift á vegum Matvælahjálpar Sameinuðu Þjóðanna. Samkvæmt talsmanni samtakanna er vannæring í hámarki á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti. Oxfam samtökin segja þetta stefna í versta ástand í landinu frá sjálfstæði.

William Bellamy, sendiherra Bandaríkjanna í Kenýa, heimsótti svæðin í gær og kynnti sér aðstæður. Hann sagðist vera ánægður með hjálparstarf á svæðinu og að rétt væri farið að öllu. Hann vonaðist til þess að heimsókn sín myndi auka alþjóðlegan stuðning á svæðinu. Hann sagði næstu mánuði verða erfiða og að menn yrðu að taka sig á til að ekki færi illa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×