Námaverkamönnunum loks bjargað 9. maí 2006 19:00
Tveir ástralskir verkamenn sem setið höfðu fastir í gullnámu í hartnær hálfan mánuð sluppu loks úr prísund sinni í morgun. Þeir voru glorhungraðir þegar þeir komu upp úr námunni en að öðru leyti amaði ekkert að þeim. Mikill fögnuður ríkti við Beaconsfield-gullnámunni á áströlsku eynni Tasmaníu í morgun, þegar þeir Brant Webb og Todd Russell komu sótugir upp úr djúpri námunni. Réttar tvær vikur eru síðan þeir festust í lyftu í námugöngunum vegna hruns af völdum jarðskjálfta og urðu þeir að dúsa í búrinu allt þar til í morgun. Félagi þeirra sem var annars staðar í námunni dó í jarðskjálftanum en útför hans fór fram í dag. Því voru tvímenningarnir í fyrstu taldir af og urðu þeir að draga fram lífið á einu súkkulaðistykki og með því að lepja vatnsdropa sem seytluðu úr berginu. Björgunarsveitir komust fimm dögum eftir skjálftann að því lífsmark leyndist ofan í eins kílómetra djúpri námunni en sökum hörku bergsins gekk þeim afar hægt að bora sér leið að tvímenningunum. Til allrar hamingju var hægt að búa til örmjóa rás niður í jörðina og í gegnum hana var komið til þeirra vatni, matvælum og iPodspilara, svona rétt til að stytta þeim stundirnar. Þeir voru því ágætlega haldnir eftir dvölina í gullnámunni en voru samt til vonar og vara fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar. Bæjarbúar brugðu sér hins vegar á næstu krá og slógu þar upp mikilli veislu.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Fleiri fréttir „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Sjá meira