Erlent

Tveir slasaðir eftir bruna í Gamla Stan

Tveir hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir bruna sem kom upp í fjölbýlishúsi í Gamla Stan, elsta hluta Stokkhólmsborgar. Baráttan við eldinn stendur enn og voru nærliggjandi byggingar rýmdar af ótta við að eldurinn bærist þangað.

Þá var nærliggjandi götum lokað fyrir gangandi umferð en þær eru mjög þröngar. Þeir sem slösuðust voru lögreglumaður sem fékk múrstein í hausinn og borgari sem fékk reykeitrun. 40-50 slökkviliðsmenn hafa barist við eldinn og telja þeir sig vera að ná tökum á ástandinu en óvíst er hvenær slökkvistarfi lýkur.

Húsið er eitt af þeim elstu í Stokkhólmi og var byggt á árunum 1645-1649 og gengur undir nafninu Petranska-húsið. Þar hafa aðallega verið skrifstofur en einnig leiguíbúðir og veitingastaður. Ekki liggur fyrir hver eldsupptök voru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×