Erlent

Utanríkisráðherrar Georgíu og Rússlands ræðast við

Georgíski utanríkisráðherrann, Gela Bezhualishvili, tekur hér í höndina á rússneska starfsbróður sínum, Sergey Ivanov.
Georgíski utanríkisráðherrann, Gela Bezhualishvili, tekur hér í höndina á rússneska starfsbróður sínum, Sergey Ivanov. MYND/AP

Utanríkisráðherra Georgíu sagði í morgun að viðræðurnar við hinn rússneska starfsbróður sinn hefðu ekki borið þann árangur sem vonast var til. Hins vegar sammældust þeir um að fundir þeirra væru jákvætt skref í átt að lausn þeirra deilumála sem komu upp í september síðastliðnum er Georgíumenn ráku fjóra rússneska herforingja úr landi vegna gruns um njósnastarfsemi.

Rússar svöruðu þá fyrir sig með því að loka á nær öll samskipti og verslun við Georgíu auk þess sem hundruðir Georgíumanna sem bjuggu í Rússlandi voru reknir úr landi. Rússneski gasrisinn Gazprom líka magnað deiluna með ætlun sinni um að tvöfalda verð á gasi til Georgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×