Erlent

Justin Timberlake með flestar styttur

Justin Timberlake var einnig kynnir kvöldsins.
Justin Timberlake var einnig kynnir kvöldsins. MYND/AP
Justin Timberlake er sigurvegari MTV-tónlistarhátíðarinnar í Evrópu. Hann flýgur heim frá Kaupmannahöfn með tvenn af aðalverðlaununum: besti karlkyns tónlistarmaðurinn og besti popparinn. Red Hot Chili Peppers fengu verðlaun fyrir bestu plötuna fyrir nýjustu afurðina "Stadium Arcadium". "Crazy" með Gnarls Barkley var valið besta lagið.

Madonna fékk engin verðlaun þetta árið, þrátt fyrir að vera tilnefnd í þremur flokkum. Christina Aguilera hirti verðlaunin sem besta tónlistarkonan, þar sem Madonna var einnig tilnefnd, ásamt Beyoncé og Shakiru.

Gömlu kempurnar í Depeche Mode voru valdar besta hljómsveitin, besta rokksveitin var bandaríska hljómsveitin The Killers og besti hiphoparinn var valinn Kanye West.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×