Erlent

Flogið í fyrsta sinn í 27 ár

Öryggisvörður lokar aðalgötunni í Gíbraltar en flugbrautin liggur þvert á hana.
Öryggisvörður lokar aðalgötunni í Gíbraltar en flugbrautin liggur þvert á hana. MYND/Getty

Í gær fór fram fyrsta áætlunarflug milli Spánar og Gíbraltar í 27 ár. Hingað til hafa spænsk stjórnvöld lokað fyrir flugumferð milli landanna og hafa flugvélar á leið til Gíbraltar þurft að krækja fyrir spænska flughelgi.

Um borð í fyrsta fluginu voru meðal annarra spænskir diplómatar sem gerðu ferðina að fyrstu opinberu heimsókn Spánverja til Gíbraltar í nær fimmtíu ár.

Spánverjar og Bretar hafa lengi deilt um yfirráð yfir Gíbraltar en íbúar svæðisins höfnuðu auknum áhrifum Spánverja í atkvæðagreiðslu árið 2002.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×