Erlent

Drepinn vegna leyniskýrslu

Yuri Shvets, fyrrverandi KGB njósnari, segir rússneska njósnarann Alexander Litvinenko, hafa verið myrtan vegna upplýsinga sem hann bjó yfir um háttsettan rússneskan stjórnmálamann.

Shvets segir að skýrslu Litvinenkos hafi verið lekið til þessa ónefnda stjórnmálamanns. Í kjölfarið hafi verið eitrað fyrir honum með pólon-210 eitri, sem dró hann að lokum til dauða.

Breskt útgáfufyrirtæki hefur tilkynnt að það muni gefa út bók sem Litvinenko skrifaði, en í henni er rússneska leyniþjónustan sökuð um innlend hryðjuverk, sem voru helsta ástæða árásar Rússlandshers á Tsjetsjeníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×