Erlent

Íranar hóta að slíta sig frá Alþjóðakjarnorkumála- stofnuninni

Ali Larijani, framkvæmdastjóri landvarnarráðs Írans.
Ali Larijani, framkvæmdastjóri landvarnarráðs Írans. MYND/AFP
Íranar hóta því að endurskoða aðild sína að Alþjóðakjarnorkustofnuninni ef öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkir ekki breytingartillögur Rússa á evrópsku uppkasti að viðskiptaþvingunum gegn Írönum. Ali Larijani, framkvæmdastjóri landvarnaráðs Írans tilkynnti þetta rétt eftir að hann kom til Moskvu til viðræðna við stjórnmálamenn í Rússlandi.

Uppkastið að viðskiptaþvingunum er skrifað af Bretum, Frökkum og Þjóðverjum og leggur blátt bann við sölu og innflutningi til Írans á búnaði og tækni fyrir kjarnorku- og eldflaugaáætlun Írana. Rússar hafa lagt til að úr uppkastinu verði eytt ákvæðum um frystingu eigna og ferðabann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×