Erlent

Nýr framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar

Margaret Chan, verðandi framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Margaret Chan, verðandi framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. MYND/AP

Margaret Chan náði í gær kjöri sem nýr framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO. Í þakkarræðu sinni sagðist hún myndu leggja mesta áherslu á heilbrigðismál kvenna og Afríkubúa. Þetta er æðsta embættið á alþjóðavettvangi sem nokkur Kínverji hefur gegnt en Chan hét því þó að vera sjálfstæð og óháð kínverskum áhrifum þó hún væri stolt af þjóðerni sínu.

Chan hlaut mikla virðingu og vinsældir innan stofnunarinnar fyrir framgang sinn í aðgerðastjórn gegn fuglaflensu í Hong Kong, sem og þegar bráðalungnabólgan geisaði.

Chan hlaut mikla virðingu og vinsældir innan stofnunarinnar fyrir framgang sinn í aðgerðastjórn gegn fuglaflensu í Hong Kong, sem og þegar bráðalungnabólgan geisaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×