Þrír palestínskir unglingspiltar létust á Gaza 26. maí 2006 21:26 Frá vettvangi sprengingarinnar í dag. MYND/AP
Þrír palestínskir unglingspiltar létust þegar þeir voru að fikta við sprengiefni á Gaza í dag. Þá særðust þrjár erlendar konur í átökum á Vesturbakkanum. Piltarnir sem létust höfðu fundið ónotuð skothylki úr ísraelskum skriðdrekum og haft þau á brott með sér í bænum Beit Lahiya á norðurhluta Gaza. Að sögn ættingja þeirra höfðu þeir svo reynt að opna hylkin vegna sprengiefnanna innan í þeim sem hæglega er hægt að selja á Gaza. Það vildi hins vegar ekki betur til en svo að eitt hylkið sprakk í höndunum á þeim með fyrrgreindum afleiðingum. Piltarnir voru á aldrinum 15-19 ára. Vikuleg mótmæli Palestínumanna gegn aðskilnaðarmúrnum, sem Ísraelsmenn hafa verið að reisa undanfarin misseri, fóru fram nærri bænum Bilin, skammt frá Ramallah, á Vesturbakkanum í dag. Mikill hiti færðist í leikinn þegar mótmælendur reyndu að komast yfir afgirt svæði nærri múrnum. Skutu her- og lögreglumenn meðal annars gúmmíkúlum og táragasi að mótmælendum. Fjórir særðust í átökunum, einn ísraelskur hermaður og þrjár erlendar konur. Meiðsl kvennanna, sem eru frá Svíþjóð, Bandaríkjunum og Þýskalandi, eru ekki alvarleg, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Hlúð var að meiðslum tveggja þeirra á staðnum en sú bandaríska var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa fengið táragashylki í höfuðið. Hún var útskrifuð af spítalanum síðar í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Sjá meira