Erlent

Átök í Basra

MYND/AP

Að minnsta kosti fjórir féllu þegar bresk herþyrla var skotin niður í borginni Basra í Írak í morgun. Í fyrstu var ekki ljóst hvað olli því að þyrlan hrapaði en síðar fékkst staðfest að þyrlan var skotin niður með flugskeyti.

Breskir hermenn skutu af byssum sínum til að dreyfa hópi fólks sem hafði þyrpst að flakinu og létu grjóthnullungum og bensínsprengjum rigna yfir hermenn sem reyndu að girða staðinn af. Talið er að minnst tveir hafi fallið í átökunum. Eldur mun hafa kviknað í nokkrum brynvörðum bílum breska hersins.

Minna hefur verið um átök í Basra samanborið við höfuðborgina Bagdad en þó hefur orðið vart nokkurar spennu þar milli breskra hermanna og andspyrnumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×