Cheney styður NATO-aðild Balkanlandanna 7. maí 2006 19:30
Aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins mun að líkindum fjölga um þrjú fyrir árið 2010. Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hét í dag Króötum, Albönum og Makedónum stuðningi sínum við inngöngu þeirra í bandalagið. Heimsókn Dick Cheney til þriggja af kommúnistaríkjum kaldastríðsáranna hefur staðið yfir í fjóra daga en í ferðinni hefur hann rætt við vel á annan tug þjóðarleiðtoga. Sum ummæli hans í ferðinni hafa raunar farið svo fyrir brjóstið á ráðamönnum í Moskvu að fjölmiðlar hafa talað um að annað kalt stríð sé handan við hornið. Heimsókninni lauk svo formlega í dag í Dubrovnik í Króatíu þar sem hann hitti forsætisráðherra landsins og starfsbræður hans í Albaníu og Makedóníu. Í ræðu sinni hrósaði Cheney þremenningunum fyrir þær lýðræðisumbætur sem þeir hafa staðið fyrir og síðan veifaði hann framan í þá kærkominni gulrót, stuðningi við aðild þeirra að Atlantshafsbandalaginu. Cheney bætti því við að innganga ríkjanna myndi hleypa nýju lífi í bandalagið. Þau hafa raunar lengi unnið að því að fá aðild að NATO og er Króatía komin lengst á þeirri vegferð. Stuðningur Bandaríkjanna við þessar væntingar ríkjanna þriggja er ekki með öllu óvæntur því í þeim sjá stjórnvöld í Washington dygga bandamenn, eflaust með réttu.
Erlent Fréttir Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Sjá meira