Erlent

Þokast í samkomulagsátt í Palestínu

MYND/AP

Hamas- og Fatahhreyfingarnar í Palestínu eru nálægt því að komast að samkomulagi um ýmis aðalágreiningsatriði fylkinganna, svo sem viðurkenningu Ísraelsríkis og lausn fanga úr fangelsum.

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, segir að ef skrifað verður undir samkomulag muni hann aflýsa þjóðaratkvæðagreiðlsu sem skipulögð hafði verið í júlí, um það meðal annars hvort palestínska þjóðin vildi samþykkja Ísraelsríki, en heimastjórn Hamas hefur litið á þjóðaratkvæðagreiðsluna sem aðför að stjórninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×