Erlent

Industria opnar skrifstofu í Kína

Íslenska fyrirtækið Industria ehf. hefur opnað skrifstofu í Kína, og verður landið þar með hið sjötta þar sem Industria hefur starfsemi. Industria selur alhliða breiðbandslausnir til fjárfestinga- og fjarskiptafyrirtækja, og á Asíumarkaði hefur orðið mikill vöxtur í þessum geira undanfarin misseri segir í tilkynningu frá félaginu.

Lausnir Industria eru sérstaklega ætlaðar fjárfestum eða fjarskiptafyrirtækjum sem hyggjast byggja upp næstu kynslóðar fjarskiptanet og afþreyingarþjónustu. Heildarlausn frá Industria er þegar í notkun hjá afþreyingar- og breiðbandsfyrirtækinu Magnet Networks á Írlandi sem miðlar sjónvarpsefni, kvikmyndum og annarri afþreyingu gegnum dreifinet sem nær til allt að 70% íbúa landsins.

Industria hlaut fyrr í mánuðinum eftirsótt verðlaun frá hinu þekkta viðskiptatímariti Red Herring sem eitt af 100 framsæknustu fyrirtækjum í Evrópu, en Kínaskrifstofan markar nú þau tímamót hjá Industria að vera fyrsta skrifstofa fyrirtækisins utan Evrópu.

Guðjón Már Guðjónsson, forstjóri Industria segir: "Sem ein af svæðisskrifstofum Industria mun Kínaskrifstofan vinna náið með öðrum félögum í samsteypunni og hjálpa til við að opna Kínamarkað fyrir lausnum fyrirtækisins, sem og að auðvelda aðgang Industria að tæknilausnum frá kínverskum framleiðendum vegna annarra verkefna. Eitt af helstu verkefnum Industria Kína verður að vinna með Zignal, stafræna sjónvarplausn Industria, því á Kínamarkaði eru gríðarlegir möguleikar að opnast með starfrænni sjónvarpstækni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×