Erlent

Viðgerðir seinka lendingu

Geimfararnir Robert Curbeam og Christer Fuglesang sjást hér að störfum við alþjóðlegu geimstöðina.
Geimfararnir Robert Curbeam og Christer Fuglesang sjást hér að störfum við alþjóðlegu geimstöðina. MYND/ap/NASA

Ákveðið hefur verið að lengja dvöl geimferjunnar Discovery í geimnum fram á föstudag til að gjörnýta ferðina til viðgerða á alþjóðlegu geimstöðinni, sem er í smíðum.

NASA ákvað að senda sinn reyndasta geimfara, Robert Curbeam, í fjórðu geimgöngu leiðangursins til að gera við bilaðan sólarorkubúnað stöðvarinnar.

Geimstöðina á að opna samkvæmt áætlun árið 2010, en verkefnið er nú þegar á eftir áætlun og þess vegna gripið til þeirra ráða að senda Curbeam í eina geimgönguna enn, ásamt sænska geimfaranum Christer Fuglesang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×