Erlent

Hófsöm öfl fái stuðning

Hitti Al-Maliki Blair ásamt írökskum starfsbróður sínum.
Hitti Al-Maliki Blair ásamt írökskum starfsbróður sínum. MYND/AP

Byssumenn í einkennisbúningum írakska stjórnarhersins réðust inn á skrifstofur Rauða hálfmánans, systurstofnunar Rauða krossins, í Bagdad í gær og námu þaðan á brott hátt á þriðja tug manna í gærmorgun. Mannránið er til vitnis um síversnandi óöldina í landinu.

„Við vitum ekki hverjir þetta voru og höfum ekki hugmynd um hver ástæðan fyrir mannráninu er,“ sagði Antonella Notari, talsmaður Alþjóða Rauða krossins í Genf.

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sem kom í gær í óvænta heimsókn til Íraks, skoraði á þjóðir heims að veita hinni umsetnu ríkisstjórn landsins stuðning. Að hans sögn væru blóðsúthellingarnar í landinu á ábyrgð „þeirra afla úti um allan heim sem eru að reyna að hindra að hófsöm öfl hafi betur.“

Blair og írakskur starfsbróðir hans, Nouri al-Maliki, ræddu meðal annars áform um að írakskar öryggissveitir taki við gæslu á hernámssvæði Breta í Basra, stærstu borginni í suðurhluta landsins. Bretar áforma að kalla þúsundir hermanna heim frá Írak á næsta ári.

Síðdegis hélt Blair til fundar við bresku hermennina í Basra, en þetta var sjötta heimsókn Blairs til Íraks síðan innrásin var gerð vorið 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×