Erlent

Átján fangar sendir heim

Um 380 fangar eru í haldi í Guantanamo.
Um 380 fangar eru í haldi í Guantanamo. MYND/AP

 Bandaríkjaher sendi átján fanga úr Guantanamo-búðunum á Kúbu um helgina til heimalanda sinna, að því er talsmaður varnarmálaráðuneytisins í Washington greindi frá í gær.

Flogið var með fangana til Afganistans, Jemens, Kasakstans, Líbýu og Bangladess. Allir voru seldir í hendur viðkomandi landsyfirvalda, nema fanginn frá Jemen sem var látinn laus.

Um 380 manns hafa verið í haldi í Guantanamo árum saman án ákæru, sakaðir af bandarískum yfirvöldum um að vera „fjandsamlegir bardagamenn“ sem réttindi stríðsfanga nái ekki til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×