Erlent

Skotárás gerð á utanríkisráðherrann

Stuðningsmenn Al-Aqsa-píslarvottanna, herskás arms Fatah-hreyfingarinnar, skekja vopn sín á æsingafundi í Jenin á Vesturbakkanum í gær.
Stuðningsmenn Al-Aqsa-píslarvottanna, herskás arms Fatah-hreyfingarinnar, skekja vopn sín á æsingafundi í Jenin á Vesturbakkanum í gær. MYND/AP

Skotárás var í gær gerð á bílalest utanríkisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar í Gaza-borg, en hann er liðsmaður Hamas-samtakanna herskáu.

 Árásin er merki um sívaxandi erjur milli ólíkra fylkinga Palestínumanna í kjölfar þess að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, boðaði þing- og forsetakosningar til að binda enda á skammæra valdatíð Hamas, en samtökin unnu hreinan meirihluta á palestínska löggjafarþinginu fyrir níu mánuðum.

Nítján ára gömul kona og palestínskur lögreglumaður létu lífið í óöldinni í Gaza-borg. Minnst þrettán manns hlutu skotsár. Táknræn árás var gerð á mannlausan embættisbústað Abbas forseta í borginni. Einnig var sprengjum varpað að skrifstofum embættisins þar hjá.

Hamas-maðurinn Ismail Haniyeh, forsætisráðherra heimastjórnarinnar, lýsti því yfir að Hamas-samtökin myndu sniðganga hinar boðuðu kosningar og sakaði Abbas um að hella vísvitandi olíu á eld innbyrðis átaka Palestínumanna.

Utanríkisráðherrann, Mahmoud Zahar, slapp ómeiddur frá skotárásinni. En Hamas-liðar sökuðu herskáa fylgismenn Fatah-hreyfingar Abbas um að hafa staðið að henni. Fyrr um daginn gerðu tugir grímuklæddra manna með alvæpni árás á þjálfunarbúðir Forsetavarðar Abbas í grennd við embættisbústað hans. Að minnsta kosti einn meðlimur hins sérþjálfaða gæsluliðs forsetans féll í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×