Hafnarlögreglan sleppir ungmennum 18. desember 2006 06:00 Kaupmannahafnarlögreglan fékk liðsauka meðal annars frá Óðinsvéum til að kljást við mótmælendurna. Á þriðja hundrað voru handteknir. Hér sjást nokkrir hinna handteknu færðir um borð í lögreglurútu í fyrrinótt. MYND/Hari
Lögregluyfirvöld í Kaupmannahöfn sögðust í gær hafa látið aftur lausa 186 mótmælendur, sem handteknir voru aðfaranótt sunnudagsins í götuóeirðum á Nørrebro, sem bárust síðan víðar um borgina. „Þetta eru allt danskir ríkisborgarar,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Kaupmannahöfn, Flemming Steen Munch. Þar að auki eru í haldi 84 útlendingar, þar á meðal 27 Svíar, 26 Norðmenn, 20 Þjóðverjar, fimm Hollendingar, tveir Finnar, tveir Írar, einn Rússi og einn Bandaríkjamaður. Munch sagði þá myndu verða látna lausa í dag eða á morgun, þriðjudag. Til átaka kom á laugardagskvöld er mótmælaganga ungmenna gegn því að svonefnt Æskulýðshús við Jagtvej á Nørrebro yrði rifið snerust upp í heiftarleg átök við lögreglu. Ekki hafði verið veitt leyfi fyrir göngunni og mótmælendur létu götusteinum, málningu og heimatilbúnum sprengjum rigna yfir lögregluna, sem svaraði með táragasi, kylfum og þrýstivatni. Eitt ungmennið missti fjóra fingur er heimatilbúin sprengja sprakk í hendi þess. Einn lögreglumaður er alvarlega slasaður, með höfuðáverka eftir grjótkast. Rúður voru brotnar í verslunum og fleiri spellvirki unnin, þar á meðal á McDonalds, útibúi Danske Bank og hverfislögreglustöð Nørrebro, að sögn fréttavefs Nyhedsavisen. Borgaryfirvöld heimiluðu ungu hústökufólki afnot af byggingunni árið 1982, en árið 2001 var hún seld til kristins félags sem síðan hefur reynt að fá unga fólkið borið út. Síðastliðinn fimmtudag var haldin friðsamleg kröfuganga þar sem borgarstjórnin var hvött til að grípa inn í og ógilda úrskurðinn um útburð. Áfrýjun hústökumanna á úrskurðinum var hafnað í Eystri landsrétti í lok ágústmánaðar síðastliðins. „Við gefumst aldrei upp,“ hrópaði hústökufólkið lambhúshettuklætt út um glugga á byggingunni á skyndilega boðuðum blaðamannafundi í gær, að sögn fréttavefs Politiken.
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fleiri fréttir „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Sjá meira