Klofningur í Bólivíu vegna stjórnarskrár 18. desember 2006 04:30 Stuðningsmenn Morales forseta hrópa vígorð gegn mótmælafundi sem haldinn var í borginni Santa Cruz de la Sierra í Bólivíu. MYND/P
Hundruð þúsunda Bólivíumanna tóku á föstudagskvöld þátt í mótmælum í Bólivíu gegn Evo Morales forseta og fyrirhuguðum stjórnarskrárbreytingum sem hann vill gera. Morales forseti nýtur stuðnings rúmlega helmings þingmanna á stjórnlagaþingi landsins og vill að einfaldur meirihluti nægi til þess að semja drög að nýrri stjórnarskrá, þótt hann fallist á að aukinn meirihluta, 2/3 hluta þingmanna, þurfi til að samþykkja lokadrögin þegar þau liggja fyrir. Andstæðingar hans vilja hins vegar að aukinn meirihluti þurfi að samþykkja hvert ákvæði nýju stjórnarskrárinnar áður en lokadrögin verða lögð fram til atkvæðagreiðslu. Íbúar Bólivíu eru annars vegar indíánar, sem eru í meirihluta og búa flestir við fátækt í fjallahéruðum í landinu vestanverðu, og svo afkomendur Spánverja og annarra evrópskra landnema sem búa við töluvert meiri velsæld á láglendinu austan til. Morales er fyrsti forseti landsins sem kemur úr röðum indíána. Eftir að hann náði kjöri í sumar hófst hann fljótlega handa við að styrkja stöðu indíána, eins og hann hafði lofað í kosningabaráttunni. Meðal annars kallaði hann saman sérstakt stjórnlagaþing, sem hefur það hlutverk að semja nýja stjórnarskrá fyrir landið þar sem réttindi indíána verði betur tryggð. Andstæðingar Morales í austurhéruðum landsins, þar sem mest er um auðlindir í jörðu, ganga svo langt að hóta því að kljúfa landið með því að lýsa yfir sjálfstæði austurhlutans fallist hann ekki á þessa meginkröfu um 2/3 meirihluta. „Annar helmingur þjóðarinnar segir: Ég hef verið í þessari stöðu í 500 ár og Evo er frelsari minn,“ sagði Eduardo Gamarra, bólivískur stjórnmálafræðingur við háskóla í Flórída í Bandaríkjunum. „Hinn helmingurinn segir: Ef þeir fá sínu framgengt þá get ég alveg eins flutt til Miami.“ Sjálfur segist Morales ekkert hafa við það að athuga að andstæðingar hans efni til mótmæla, en hann segist staðráðinn í að beita hervaldi til að koma í veg fyrir aðskilnað austurhlutans. „Við erum byrjaðir að ná Bólivíu aftur á okkar vald,“ sagði hann og beinir hörðum orðum að auðugu kaupsýslumönnunum sem eru í fararbroddi aðskilnaðarmanna: „Nú þegar þeir geta ekki selt Bólivíu þá vilja þeir skipta Bólivíu í tvennt, það er aðalmálið. En það verður engin skipting landsins.“
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Fleiri fréttir Opna aftur á flugumferð í El Paso en útskýra enn ekkert Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Sjá meira