Erlent

Írak auðveldar nýliðun öfgaafla

Öfgamenn notfæra sér ástandið í Írak sem áróðurstæki til þess að vinna menn á sitt band og fá þá til að fremja hryðjuverk í Evrópu. Þetta segir Gijs de Vries, sem fer með hryðjuverkamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

„Hættan á hryðjuverkum í Evrópu er enn mikil og ég býst við að hún verði það árum saman,“ sagði Vries á fimmtudaginn. „Þetta er ekkert skammtímafyrirbæri.“ Bæði í Bretlandi og Þýskalandi var komið í veg fyrir stórar árásir á þessu ári og að sögn de Vries er Europol að rannsaka 20 hryðjuverkamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×